Hafðu áhrif!

Langar þig til að breiða út boðskapinn fyrir uppáhalds listafólkið þitt?

Viltu að fólk missi ekki af viðburðinum sem þú brennur fyrir?

Nú getur þú gerst erindreki fyrir uppáhalds listafólkið þitt og notið fríðinda fyrir að gera það sem þú elskar. (Já, og jafnvel fengið borgað í beinhörðum peningum!)

ATOM er systurfyrirtæki MOMENT sem býður ástríðufullum aðdáendum að gerast ÁHRIFAVALDAR eða ERINDREKAR fyrir MOMENT viðburði.

Þú finnur fólkið sem tilheyrir samfélaginu í kringum viðburðinn, byggir upp stemmningu og nýtur góðra fríðinda fyrir að selja miða.

Það eina sem þú þarft að gera er að dreifa sérstökum tengli á uppáhalds viðburðina þína!

Dæmi um fríðindi

Fríðindin eru mismunandi eftir viðburðum, en hér að neðan eru nokkur dæmi.

Fyrsta stig

3 seldir miðar - þú færð frían drykk að eigin vali

Annað stig

5 seldir miðar - ókeypis stuttermabolur úr „merch“ línu listamanns

Þriðja stig

10 seldir miðar - frír miði á viðburðinn

Fjórða stig

15 seldir miðar - 10% af sölunni beint í þinn vasa

Og svo framvegis…

Hvernig gerist þú erindreki / áhrifavaldur?

Gerist erindreki / áhrifavaldur og þú færð eigin hlekk fyrir viðburðinn til að deila.

Skref 1

Veldu þinn uppáhalds viðburð hér að neðan og skráðu þig inn á ATOM.

Skref 2

Fylgist með sölutölum í mælaborði ATOM og nýtur fríðindanna í botn.

Skref 3

Deilir viðburðinum á samfélagsmiðlum eða með rétta fólkinu, selur miða og byggir upp innblásið samfélag sem kyndir undir stemmningunni.

Skref 4

Veldu þinn uppáhalds viðburð og hafðu áhrif!

 
 

GusGus heldur danspartý ársins í Höllinni 30. maí og þú getur gerst áhrifavaldur fyrir uppáhaldshljómsveitina þína. 

Styrktu samfélagið kringum viðburðinn! Breiddu út boðskapinn!

Gerast erindreki fyrir GusGus!

 
 

KALEO stíga á svið á Þingvöllum ásamt völdum hópi listamanna. Með þeim kemur fram öflugt úrval íslenskra tónlistarmanna, þar á meðal Emilíana Torrini, Mugison, Stuðmenn, Helgi Björnsson, Hjálmar, GDRN, Júníus Meyvant, KK og Árný Margrét – ásamt fleiri góðum gestum.

Styrktu samfélagið kringum viðburðinn! Breiddu út boðskapinn!

Gerast erindreki fyrir KALEO!

 
 

Iceland Eclipse er fjögurra daga tónlistar og menningarhátíð sem fer fram 12.–15. ágúst 2026, þegar almyrkvi sést yfir Ísland í fyrsta sinn síðan árið 1954. Þar sameinast tónlist, listir, vísindi, vellíðan og ævintýri á einu magnaðasta svæði landsins – undir Snæfellsjökli.

Styrktu samfélagið kringum viðburðinn! Breiddu út boðskapinn!

Gerast erindreki fyrir Iceland Eclipse!

 

Dagskrá Innipúkans endurspeglar fjölbreytni og kraft sem einkennir íslenska tónlistarsenu í dag. Partíbönd, danstónlist, rokk og ról mæta öll spennt, hress, þurr og pínu full.

Styrktu samfélagið kringum viðburðinn! Breiddu út boðskapinn!

Gerast erindreki fyrir Innipúkann!

 
 

Glacier Fight Night er viðburður í blönduðum bardagalistum (MMA) þar sem fremsta bardagafólk þjóðarinnar mætir öflugum andstæðingum víðsvegar að úr heiminum.

Styrktu samfélagið kringum viðburðinn! Breiddu út boðskapinn!

Gerast erindreki fyrir GFN 3!

 
 

Luigi snýr heim þann 18. júní og boðar til stórtónleika í heimili uppeldisfélagsins Víkingi í boði Coke Cola og Thule.

Styrktu samfélagið kringum viðburðinn! Breiddu út boðskapinn!

Gerast erindreki fyrir Luigi!

Áhrifavaldakerfið ATOM virkjar samfélagið í kringum viðburðinn 

MOMENT er mun meira en hefðbundið miðasölukerfi.

Markmiðið er að byggja upp heildstæða verkfærakistu fyrir viðburðahaldara þar sem saman fara miðasala, skipulagning, gagnagreining, tekjuhámörkun og samfélagsuppbygging í kringum viðburði.

Kerfið er hannað til að nýtast jafnt litlum tónleikum sem stórum viðburðum og býður upp á fjölbreyttar tæknilausnir sem auðvelda utanumhald, samskipti við gesti og sölu á viðbótarupplifunum. Áhersla er lögð á að aðlaga tæknina að íslenskum markaði og þörfum íslenskra viðburðahaldara.

ATOM er systurfyrirtæki MOMENT, og er nýtt áhrifavaldakerfi sem byggir á því að virkja aðdáendur og samfélög í kringum viðburði. Þar geta einstaklingar sem hafa ástríðu fyrir ákveðnu listafólki eða viðburðum tekið þátt í að dreifa boðskapnum, byggja upp stemningu og skapa umræðu í kringum viðburðina.

Hugmyndin er að færa markaðssetningu nær fólkinu sjálfu og umbuna þeim sem taka virkan þátt. Þátttakendur geta fengið fríðindi, gjafir eða tekjur fyrir sitt framlag og þannig orðið hluti af upplifuninni sjálfri, ekki aðeins áhorfendur.

ATOM verður opið fyrir alla viðburðhaldara innan MOMENT sem óska eftir því og er ætlað að skapa sterkari og persónulegri tengingu milli listafólks, viðburðahaldara og aðdáenda.

Markmiðið er að umbreyta áhuga og stemningu í raunverulegt samfélagslegt afl sem hjálpar viðburðum að lifna við löngu áður en ljósin kvikna á sviðinu.